Ha? Geezer... Hvað er það... ?
Ekki furða að þið spyrjið, núna eru komnir... jahh... Heilir 19
dagar síðan seinasta blogg hjá képpanum... "but who´s counting.. an
old lady counts!!" þannig að það má kalla þetta POWER UPDATE !
Það er margt og mikið búið að gerast síðan þið "heyrðuð" í mér
seinast... Þar á meðal er képpinn byrjaður að leita sér að íbúð til
að KAUPA... planið var samt sem áður að leita að íbúð til að leigja
með Daða og Bjarna Már sem var svaka spennandi en svo fór maður að
hugsa sig aðeins um að það væri kannski kominn tími til að kíkja í
kringum sig að íbúð til að kaupa frekar þar sem maður er kominn á
þennan háa aldur og það er gott að byrja að "eignast" eitthvað og
svo hefur maður líka heyrt alls konar sorgar sögur af strákum sem
hafa leigt með felögum sínum og annað hvort hefur það endað með
slagsmálum og morðhótunum eða þá að einn hefur ákveðið að flytja
út(búinn að finna sér konu eða eitthvað) og þá þurfa hinir
náttúrulega að gera það sama þar sem þeir ráða ekki lengur við
leiguna.... svo minns er byrjaður að leita... gengur frekar hægt
þar sem greiðslumatið mitt kom þannig út að bankinn "má" aðeins
lána mér fyrir 9.000.000 kr sem er varla nóg til að kaupa sér 10 fm
hænsnakofa eins og markaðurinn er í dag... en svo komst ég að því
að hún aldraða móðir mín og sambýlingur ætlað að styrkja mig líka
eftir að hún fékk arf frá ömmu og afa... svo núna er ég betur
staddur og get farið að leita mér að eitthverju aðeins betra en
hænsnakofa... JEY ! Er búinn að vera aðeins duglegur að skoða í
þessari fríviku... búinn að kíkja á eina á Laugarnesveginum(sem var
frekar lítil og asnaleg), svo kíkti ég á eina á Ásbrautinni í
kóp(hún var massa fín en samt.... frekar lítil...), svo er opið hús
í íbúð uppí árbæ í dag (My old stomping grounds) sem væri geðveikt
að fá þar sem hún er í hraunbæ 20 og er 56 fm... væri gaman...
NUSSSS !!!! Svo er líka ein sem ég ætlaði að fara að kíkja á á
föstudaginn uppí Krummahólunum(hún leit geðveikt vel út á netinu)
en ég komst ekki að skoða þar sem ég var heima með "Gullfoss og
Geysi" (if you know what I mean...)

Kíki bara á hana seinna ef
hún er ekki nú þegar farin út...
Annars er ég allur að koma til núna, ég er búinn að lifa á ristuðu
brauði og Coke(The drink...) seinustu tvo daga sem er miður
gaman... búinn að refsa marmaranum á alla vegu sem mögulega hægt er
og búinn að tapa sirka 40 lítrum af vökva in the process!

...fólkið fyrir ofan okkur var með þessa pest í byrjun fríviku hjá
mér sem ég veit afþví að það heyrist skuggalega vel á milli hæða
(þá best á klósettinu), fyrst var ég að spá hvort að konan hefði
svona gaman af því að skúra og helti svo alltaf skúringarvatninu í
klósettið og sturtaði niður.. en svo þegar ég heyrði stunurnar og
kúghljóðin vissi ég að raunin var önnur.... skemmtileg saga
really..... jaaa kannski seinna...
Þessi frívika er samt bara búin að vera massa skemmtileg fyrir utan
veikindin... Annika er byrjuð hjá dagmömmu uppí Ferjubakka í
Breiðholtinu og er búin að vera í aðlögun út vikuna. Byrjaði bara
stutt.. í 1 klukkutíma þar sem ég sat yfir henni, hún var smá
feimin fyrst en fór síðan að leika sér við hina krakkana eins og
ekkert væri eðlilegra... svo annan daginn prufaði ég að fara frá í
40 mínútur og hún sýndi engin svipbrygði(sem ég vona að sé
gott...

) svo næsta dag var hún lengur ein og fékk að borða hjá
dagmömmu... og þann næsta var hún þar í heila 6 tíma og fékk að
sofa úti í vagni og var geveikt dugleg! That´s my girl!

Algjört
yndi!
Svo var ég að vinna frá 11 til 23 seinust vinnuviku, vikunar mínar
skiptast núna þegar ég er kominn á dagvaktir þannig að ég er að
vinna frá 08 til 20 aðra vikuna og 11 til 23 hina vikuna sem er
fínt nema maður á sér EKKERT líf þegar maður er að vinna frá 11 til
23... sem er allveg fínt þar sem það er lítil tilbreyting frá
restinni af mánuðinum... EN þegar ég kom heim eftir vinnu á
föstudaginn fyrir viku.. s.s. á 29 september þá var samt gaman...
því þá var Unnar brósi að halda uppá afmælið sitt og var búinn að
hertaka íbúðina hennar mömmu undir partýstand... kom inn þreyttur
og tilbúinn fyrir dínu og sof en þegar ég opnaði útihurðina blasti
við mér haf af skóm og hlátur fyrir innan, ég var búinn að
steingleyma að þetta átti að vera þetta kvöld þannig að þetta var
svona pleasant surprise! Kíkti innfyrir náttúrulega ennþá
uppdressaður í uniforminu...

sem vakti mikla lukku... Arnór var
samt frekar leiður þegar hann sá að ég var ekki að fara að strippa
og væri ekki the male stripper sem hann hafði verið að vonast
eftir...

neinei.. annars gekk það kveld frekar vel, fékk mér
einn kaldan bjór með liðinu og tók heldur betur þátt í leiknum hjá
strákunum sem var þannig að það var víst ýkt geðveikt fyndið að slá
FAST í annað hvort lærið eða aftaná bakið á hvor öðrum og segja
"BLÉSSAÐUR!".... sem var allveg gaman framan af þangað til ég snéri
mér við og ætlaði að skipta um lag á i-poddinum hans Unnars og var
opinn fyrir bæði bak og læris skellum... sem strákarnir nýttu
sér.... aftur... og aftur.... og aftur... sem var ekki gaman.. lá
þarna í sárum mínum á meðan allir stóðu yfir mér og hlógu...
gremjan og hefndarþorstinn náðu til mín, ég settist aftur upp í
stólinn minn og beið...hefndarinnar.... beið rétta tímans... uns
hann kom... Unnar var að taka til af borðinu fyrir framan mig... ég
stóð upp og bauð honum hjálp... og.... ...restin af kveldinu er
ennþá í móðu, ég veit bara að ég er ennþá hálf dofinn í lófanum og
Unnar er hættur að tala við mig... ég þarf að laga þetta... en
hvernig... hvernig fær maður gyðing til að fyrirgefa nasista sem er
nýbúinn að aflífa fjöldskyldu hans, hvernig fær maður brotin og
sáran ungan mann til að þyggja fyrirgefningu... á meðan laufin
gulna og detta af trjánum og barrnálarnar safnast saman í öllum
skotum og skorum og undirbúa sig fyrir veturinn mun ég ekki hætta
fyrr en ég næ að laga það sem ég hef gert.... næ að gera upp fyrir
það sem ég gerði rangt... fyrr en ég hef náð aftur trausti og trú
ungs manns sem kallaði mig einu sinni bróðir........
ENNNN... það var ekki það eitt sem gerði 29. September af merkum og
minnistæðum degi! Jú viti menn!!!! SIGGI OG AUÐUR eru búin að
eignast litla stelpu!!!!! Gerðist sama dag og allt! Ég hlakka
ekkert smá mikið til að koma og heimsækja (Hint, hint!) litlu
fjöldskylduna og fá að sjá snúlluna, sem er án efa ef marka má
foreldrana, næsta ungfrú heimur... !

Enn og aftur Til hamingju
Siggi og Auður og til lukku með litlu prinsessuna ! Sá myndirnar af
henni og hún er fullkomin!
En nú þarf ég að fara að kíkja í sturtu og skola af mér, vekja
Anniku og halda áfram....
Ég lofa að ég verði duglegri að blogga from now on... jahh ef
tölvunördarnir niðrí vinnu hleypa mér aðeins að í tölvuna once in a
while !
PEACE! NUSSSSSSSS!!!!
Linkurinn í dag : Smellið
HÉR...
slökkvið svo á tölvunni og kíkið út í göngutúr!